Þvagstómia ( Ureastomia )
Þvagpoka fá þeir sem lent hafa í uppskurði vegna nýrnaaðgerðar eða galla eða sýkingar í
þvagblöðru og fer þá vökvinn í þvagpoka. Þess háttar aðgerðir eru mun færri en aðgerðir vegna ristils.Sá sem er með poka á kviðnum hefur enga stjórn á því sem kemur í pokann. Þess vegna þarf að gæta þess að tæma hann reglulega. Einnig þarf að gæta þess að skipta um poka og/eða plötu reglulega. Það er afar misjafnt hversu lengi plata endist hjá hverjum og einum. Sumir þurfa að skipta um allt daglega, aðrir láta nægja að skipta um á 5-7 daga fresti.






