Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Innvortis pokar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
J-Poki

 

 

J-PokiÁ síðustu árum hefur það færst í vöxt að í stað stómíu eru gerðir innvortis pokar. Þeir sem fara í slíkar aðgerð vegna ristilsjúkdóms fá svonefndan garnapoka. En til þess að unnt sé að gera slíka aðgerð verður endaþarms- eða hringvöðvinn að vera í lagi og að neðsti hluti ristilsins hafa verið skilinn eftir. Ýmsar aukaverkanir geta hugsanlega fylgt í kjölfar slíkra aðgerða en mestar líkur eru á að allt gangi vel eru hjá yngra fólki og fólki á miðjum aldri sem er líkamlega vel á sig komð að öðru leyti. Á myndinni hér til hliðar sést J-poki en gerð hefur verið tímabundin stómía svo J-pokin geti gróið vel áður en fæða fer í hann, ekki er alltaf þörf á þessari aðgerð. Hér á landi er oftast gerðar tvær aðgerðir. Sú fyrsta felur í sér að ristillinn er tekin og stómía gerð. Síðari aðgerðin felur í sér að stómíunni er sökkt, þ.e stómína er tekin og búin til j-poki. Að nokkrum dögum liðnum frá aðgerð getur einstaklingur svo byrjað að nota pokann í samráði við lækni

 

Borði
Styður gerð þessarar síðu.