Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Stómasamtökin
Saga

Stómasamtök Íslands

Stómasamtök Íslands voru stofnuð 16. október árið 1980 og fagna því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Þau hafa ávallt verið undir verndarvæng Krabbameinsfélags Íslands og eru eitt af elstu stuðningsfélögum þess. Þá eru Stómasamtök Íslands einnig nýasta aðildarfélagið að Öryrkjabandalagi Íslands. Félagar samtakanna voru 214 árið 2004 og eru kynjahlutföllin nokkuð jöfn. Ekki eru einungis stómaþegar í samtökunum heldur eru einnig læknar, hjúkrunarfræðingar, foreldrar og ættingjar stómaþega. Félagsmenn eru á öllum aldri, barnungir sem fjörgamlir.

Stómasamtök Íslands voru stofnuð til að styðja og leiðbeina einstaklingum sem að gengist hafa undir stómaaðgerðir þ.e ristilstóma (colostomy), garnastóma (ileostomy),þvagstóma (urostomy) svo og garnapoka (J-pouch) eða nýblöðruaðgerð. Stóma, garnapoki eða nýblaðra eru ekki sjúkdómar heldur afleiðing nokkurra sjúkdóma, fæðingargalla eða jafnvel slyss. Helstu sjúkdómarnir eru krabbamein í ristli og/eða endaþarmi, krabbamein og sjúkdómar í þvagfærum og bólgusjúkdómarnir sáraristilsbólga (Colitis Ulcerosa) og Crohns sem leggjast á ristil og meltingarveg.
 

Helstu starfsþættir félagsins og baráttumál

Stómasamtök Íslands styðja við stómaþega og fjölskyldur þeirra. Þau leggja metnað sinn í að miðla málefnum er varða félagsmenn s.s fræðsluefni og miðlun upplýsinga, útgáfu fréttabréfs, sjá um skipulagða heimsóknaþjónustu fyrir tilvonandi eða nýja stómaþega og berjast fyrir réttindum þeirra.

Eitt helsta baráttumál Stómasamtakanna hefur verið að beita sér fyrir því að hentug hjálpartæki séu ætíð á boðstólum og afgreiðsla þeirra sé sem greiðust. Einnig er mikið lagt upp úr góðu samstarfi við lækna, hjúkrunarfólk og líknarfélög sem og aðra velgjörða samtakanna.
 

Fundir og fjáröflunarleiðir

Félagsfundir eru haldnir 4-5 sinnum yfir vetrarmánuðina. Á fundunum er reynt að fá ýmsa gesti sem að miðlað geta upplýsingum til stómaþega. Sem dæmi má nefna þá kom á síðasta starfsári Daníel Ólason sálfræðingur og ræddi um áhrif hugsana á líðan sjúklings, góð áhrif þess að vera jákvæður þegar glíma þarf við erfiðan sjúkdóm. Einnig komu Tryggvi Stefánsson skurðlæknir og Kjartan Örvar lyflæknir í heimsókn. Þeir héldu fyrirlestur um þá valmöguleika í lyfjameðferðum og skurðaðgerðum fyrir colitis, crohn's sjúklinga og stómaþega í dag. Þá eru kynningar á nýjum hjálpartækjum sem í boði eru fastir liðir í starfsemi samtakanna. Þá fór hluti af stjórninni norður á Akureyri síðastliðið haust og hélt fund með félagsmönnum sem búa á því svæði. Það tókst mjög vel og er áætlað að hafa fund þar árlega.
Stómasamtökin taka þátt í merkjasölu Krabbameinsfélagsins ár hvert sem þátt í fjáröflunarleið félagsins. Samt eru styrkir frá velunnurum félagsins aðalfjáröflunarleið Stómasamtakanna. Þakka samtökin Krabbameinsfélaginu, Öryrkjabandalaginu ásamt innflutnings- og söluaðilum stómavarnings kærlega fyrir veittan stuðning.
 

Áfangar í starfi félagsins

Sú þjónusta sem Stómasamtökin er stoltust af er heimsóknaþjónustan. Þegar einstaklingar fá að vita að þeir þurfa að gangast undir aðgerð og fá stóma, nýblöðru eða garnapoka þá geta þeir fengið heimsóknir frá jafningja sem hefur sömu reynslu að baki. Það eru oft margar spurningar sem brenna á vörum sjúklings þegar hann á þessa stóru aðgerð í vændum og er gott að geta rætt saman og spurt einhvern sem þegar hefur gengið í gegnum þetta ferli. Reynslan sýnir að þeir sem þiggja heimsókn eru ánægðir með að hafa gert svo og segja hana hafa hjálpað. Vilja Stómsamtökin benda þeim á sem eiga stómaaðgerð í vændum að hafa samband og fá heimsókn frá jafningja. Einnig ábending til heilbrigðisstarfsmanna að kynna áfram þennan kost fyrir sjúklingum sínum.
 

Lokaorð

Stómasamtökin eru mikilvæg stuðningssamtök fyrir stómaþega og aðstandendur þeirra. Samtökin telja að með því að tala saman af einægni og hreinskilni um málefni stómaþega getum við hjálpað hvert öðru og barist fyrir hagsmunum okkar allra. Þeir sjúkdómar/veikindi sem að hrjáð hafa fólk fyrir stómaaðgerð hafa mikil áhrif á lífsgæði þess. Þess vegna felst ákveðið frelsi þegar að einstaklingur hefur náð heilsu á ný eftir þessa stóru aðgerð Það er því margt satt í orðunum að lífið fyrst byrji eftir stómaaðgerð. Því að sjúkdómurinn hefur þá verið fjarlægður með skurðaðgerð (á ekki við um Crohn's). En aðlögunin er löng og ströng og þarf stómaþeginn að læra á nýjan líkama og oft horfast í augu við breytt lífsplön. Það er því tilgangur Stómasamtaka Íslands að stuðla í hvívetna að velferð fólks sem gengist hefur undir stómaaðgerðir.
 

Styrkja Samtökin

Ef að þú vilt styrkja Stómasamtökin hvort sem er með fjárframlagi eða öðru vinsamlega hafðu samband við okkur.
Netfangið er:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Öll fjárframlög verða nýtt í hin ýmsu verkefni innan Stómasamtakana s.s. fræðslu og uppbyggingu félagsins svo eitthvað sé nefnt.

Með bestu kveðjum og þökk, 
stjórn Stómasamtakana
 



Borði
Styður gerð þessarar síðu.