Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Velkomin á síðu Stómasamtakanna

Stómasamtök Íslands voru stofnuð til að styðja og leiðbeina einstaklingum sem að gengist hafa undir stómaaðgerðir þ.e ristilstóma (colostomy), garnastóma (ileostomy),þvagstóma (urostomy) svo og garnapoka (J-pouch) eða nýblöðruaðgerð. Stóma, garnapoki eða nýblaðra eru ekki sjúkdómar heldur afleiðing nokkurra sjúkdóma, fæðingargalla eða jafnvel slyss. Helstu sjúkdómarnir eru krabbamein í ristli og/eða endaþarmi, krabbamein og sjúkdómar í þvagfærum og bólgusjúkdómarnir sáraristilsbólga (Colitis Ulcerosa) og Crohns sem leggjast á ristil og meltingarveg.

Stómasamtök Íslands voru stofnuð 16. október árið 1980 og fagna því 29 ára starfsafmæli á þessu ári. Þau hafa ávallt verið undir verndarvæng Krabbameinsfélags Íslands og eru eitt af elstu stuðningsfélögum þess. Þá eru Stómasamtök Íslands einnig nýasta aðildarfélagið að Öryrkjabandalagi Íslands. Félagar samtakanna voru 214 árið 2004 og eru kynjahlutföllin nokkuð jöfn. Ekki eru einungis stómaþegar í samtökunum heldur eru einnig læknar, hjúkrunarfræðingar, foreldrar og ættingjar stómaþega. Félagsmenn eru á öllum aldri, barnungir sem fjörgamlir.

 

Félagsfundur í febrúar

Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar 2012 kl. 20:00 í Skógarhlíð 8.  Húsið opnar kl. 19:30.
Spjall og léttar veitingar.
 

Örráðstefna um kynlíf og krabbamein

 

KYNLÍF OG KRABBAMEIN

- RÆÐUM MÁLIN - VIÐ ÞORUM!

Örráðstefna 19. janúar 2012 kl. 16:30-18:00
Að viðhalda eða endurheimta nánd í samböndum  í krabbameinsmeðferð
Opnum umræðuna um kynlíf og krabbamein
Á örráðstefnu Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Kynlíf og krabbamein, sem haldin verður fimmtudaginn 19. janúar í tengslum við verkefnið  Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss, fjallar hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf.  Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein segja frá sinni reynslu. Fundarstjóri er Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.
,,Þrátt fyrir að almenn umræða um kynlíf sé nokkuð opinská nú á tímum þá virðist hún ekki vera auðveld þegar kemur að samskiptum læknis og sjúklings. Þetta er reynsla okkar hér í Hollandi þó við séum talin fremur frjálslynd. Það er undantekning ef ekki er hægt að gera eitthvað fyrir sjúklinginn, þrátt fyrir mjög alvarleg veikindi,“ segir dr. Woet Gianotten, sérfræðingur í kynfræði.

 

UM RÁÐSTEFNUNA:

Örráðstefnan verður haldin í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 19. janúar næstkomandi milli 16:30 og 18:00. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Dr. Woet Gianotten hefur starfað um árabil við lækningar og ráðgjöf á sviði kynfræði (e. sexology) við háskólasjúkrahúsin í Utrecht og Rotterdam í Hollandi. Sérhæfing hans felst í ráðgjöf og meðferð um kynheilsu þar sem sjúkdómar, líkamleg fötlun og læknisfræðileg inngrip eru meginástæða kynlífsvanda skjólstæðingsins.
Dr. Woet Gianotten segir að í starfi sínu við endurhæfingu á kynheilbrigði sé vandi sjúklinganna afleiðing ýmissa sjúkdóma en vandi krabbameinssjúklinga stafi af meðferðinni. Þetta er mikilvægur munur.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir fjölbreytta ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Markmið starfsins er að aðstoða fólk við að takast á við breyttar aðstæður eftir greiningu krabbameins.

 

Borði
Styður gerð þessarar síðu.