Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Hagnýtt Efni J-poka spurningar og svör
Spurningar og svör við J-poka aðgerð.

Eru einhverja aukaverkanir eða óþægindi sem að gott er að vita af?

Já það geta komið upp vandræði sem eru í flestum tilfellum smávægileg miðað við það sem sjúklingur með slæma bólgusjúkdóma hefur upplifað. Einstaklingar geta fundið fyrir stíflu, þ.e til dæmis þegar maturinn hefur ekki verið tugginn nægilega vel og festist í görninni, þyrmla (fistula), og sýkingu í pokann (pouchitis). Þetta er allt hægt að meðhöndla. Mjög sjaldgæft vandamál er leki (anastomosis leakage) þá gæti þurft að setja tímabundna stómíu á meðan svæðið þar sem lekinn er fær að gróa. Síðan er görnin saumuð saman aftur (stómían tekin) og pokinn tekur aftur til sinna starfa. Skurðlæknirinn þinn mun gera allar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að þessi vandamál komi upp . Mundu bara að vera í góðu sambandi við lækninn þinn og stómahjúkrunarfræðinginn og spurðu þeirra spurninga sem brenna á þér. Einnig er gott að hafa samband við Stómasamtök Íslands þar sem þar er fólk sem hefur sömu reynslu og þú og getur aðstoðað þig .
 

Hafa einhverjir eftirsjá eftir að hafa farið í j-poka aðgerð?

Flestir einstaklingar sem að farið hafa í aðgerðina eru mjög ánægðir með ákvörðun sína. Töflur, verkir, blóðugar hægðir heyra sögunni til. Margir þora ekki annað en að standa vörð og bíða eftir næsta kasti, þar sem þeir eru orðnir svo vanir að búa við óttann af krónískum sjúkdómi. En þér er óhætt að sleppa takinu því að sjúkdómurinn er farinn og núna byrjar líf þitt að nýju. Margir segja að eftir að ristillinn var tekin þá fyrst hófst lífið fyrir alvöru.
 

Get ég fengið sáraristilsbólgu (Colitis ulcerosa) aftur?

Nei, aðgerðin og brottnám ristils og slímhúðarinnar í endaþarmi lokar þeim kafla í lífi þínu. Ef það er enginn ristill þá er engin sáraristilsbólga heldur! Með því að fjarlægja ristilinn er einnig komið í veg fyrir ristilskrabba. Þó er stundum skilin eftir mjög lítil hluti af slímhúð sem skurðlæknirinn þarf þá að fylgjast með reglulega.
 

Get ég átt eðlilegt kynlíf?

Bæði kynin ættu að geta lifað eðlilegu kynlífi eftir aðgerð. Andlegir erfiðleikar sem að oft hrjá fólk eftir erfiða reynslu geta þó haft áhrif á kynlífið. Líkamlega er ekkert því til fyrirstöðu að fólk geti lifað eðlilegu kynlífi sem áður.
 

Hvað má ég borða eftir að ég hef fengið J-poka

Næstum því allan mat. Þú verður bara að prófa þig áfram í smáum skömmtum í einu og athugaðu hvernig þér líður. Ef þú áttir í erfiðleikum með að melta mjólkurvörur eða með laktósaóþol gæti það enn verið til staðar. Nánar um mataræði frá Svövu 
 

Er J-poka aðgerð mjög sársaukafull?

Þú getur fengið verk á skurðsvæðið eftir aðgerð. Það eru til góð verkjastillandi lyf sem eru gefin á spítalanum. Flestir taka svo hefðbundin verkjalyf þegar heim er komið við góðan árangur. Fljótlega eftir heimkomu er svo ekki þörf fyrir þau lengur.
 

Þarf ég að taka inn lyf?

Ekki endilega. Flestir trappa sig niður af sterunum sem þeir fá við aðgerðina á nokkrum vikum. Ef þú hefur verið mjög lengi á sterum þá gæti það tekið lengri tíma. Sumir taka inn imodium til að hægja á þarmahreyfingum til að minnka tíðni klósettferða, einnig taka sumir inn Husk í sama tilgangi. Aðgerðin er lækning í sjálfum sér!
 

Næstum því allan mat. Þú verður bara að prófa þig áfram í smáum skömmtum í einu og athugaðu hvernig þér líður. Ef þú áttir í erfiðleikum með að melta mjólkurvörur eða með laktósaóþol gæti það enn verið til staðar. Nánar um mataræði frá Svövu

Á fyrstu vikunum verða þær um 8-10 sinnum á dag. En pokinn jafnar sig á 3-6 mánuðum og þá geta þær minnkað í allt 5-6 sinnum á dag. Þessar tölur eru auðvitað breytilegar eftir einstaklingum. Einnig hefur matarræði áhrif á hversu oft þú þarf að losa pokann.
 



Borði
Styður gerð þessarar síðu.