Ástæður:
Nauðsynlegt til þess að styrkja hringvöðvann og hjálpa til við að stjórna hægðum.
Hringvöðvi:
Vöðvar sem að gera þér kleift að stjórna hægðum.
Æfingar:
Þú getur byrjað að gera æfingarnar fyrir aðgerð og byrjað svo aftur 3 vikum eftir aðgerð. Ástæða þess að ekki er gott að gera æfingarnar á meðan þú ert á spítalanum og strax eftir aðgerð er vegna þess að aðgerðarsvæðið þarf tíma til að gróa vel áður en þú byrjar að þjálfa vöðvann. Ráðfærðu þig við lækni um hvenær þú mátt byrja að gera æfingarnar.
Æfingakerfi:
1. Spenntu hringvöðvann, eins og þú værir að stoppa hægðirnar frá því að komast út. Haltu spennunni á meðan þú telur hægt upp að 10. Slakaðu á áður en þú spennir aftur og telur upp að 10. Endurtaktu í tíu skipti 6- 10 sinnum á dag eða jafn oft og læknirinn þinn ráðleggur þér.
2. Það sem er svo gott við þessar æfingar er að þú getur gert þær hvenær sem er á hvaða tíma sem er, standandi, sitjandi eða liggjandi. Í röðinni í matvörubúðinni, í vinnunni, við sjónvarpið, í símanum o.s.frv.
Gott er að halda æfingunum áfram þó að þú hafir útskrifast af spítalanum. Hikaðu ekki við að spyrja fagfólk s.s. skurðlækni, meltingalækni eða stómahjúkrunarfræðing um þær spurningar sem brenna á vörum þér.






