Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Hagnýtt Efni Bjargráð 7. Fólk á eftirlaunaaldri þegar það greinist með krabbamein

7. Fólk á eftirlaunaaldri þegar það greinist með krabbamein

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Til viðbótar við lífeyrisgreiðslur almannatrygginga geta eftirfarandi réttindi verið til staðar fyrir ellilífeyrisþega:

a)      Uppbót á lífeyri vegna mikils umönnunarkostnaðar eða umönnunarbætur vegna umönnunar í heimahúsi. Þá þarf umönnunaraðili að hafa sama lögheimili og viðkomandi sjúklingur og einnig þurfa önnur laun umönnunaraðilans að lækka vegna umönnunarinnar.

b)      Bensínstyrkur vegna hreyfihömlunar.

c)      Styrkur til kaupa á bifreið ef viðkomandi er hreyfihamlaður og yngri en 75 ára.

 

Einnig má benda á Félag eldri borgara sem hagsmunafélag og hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri, einnig makar þeirra þótt þeir séu yngri. Vefsíða félagsins er www.feb.is

 

Borði
Styður gerð þessarar síðu.