Launþegar í veikindaleyfi halda fullum launum í ákveðinn tíma og er sá tími í samræmi við kjarasamning viðkomandi stéttarfélags. Mikilvægt er að fólk athugi vel áunnin réttindi hjá stéttarfélagi sínu strax í byrjun veikinda. Mikilvægt er að ráðfæra sig við fulltrúa viðkomandi stéttarfélags ef til þess kemur að fólk þurfi að gera starfslokasamning. Rannsóknir hafa sýnt að krabbameinssjúklingar sem halda starfi sínu og fá stuðning frá vinnuveitanda gengur betur að ná bata á nýjan leik og að þeir sem missa starf sitt fyllast oft vonleysi um framtíðina. Nokkur munur er á reglum stéttarfélaga og lífeyrissjóða og eru hér sett fram nokkur dæmi til glöggvunar:
6.1. Stéttarfélag:
Eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur á fólk rétt á greiðslu dagpeninga úr sjúkrasjóði síns stéttarfélags samkvæmt reglum sjóðsins. Misjafnar reglur eru hjá stéttarfélögum um greiðslu dagpeninga. Greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags koma til viðbótar sjúkradagpeningum frá Tryggingastofnunar ríkisins og öðrum greiðslum sem rekja má til fjarveru frá vinnu. Hægt er að sækja um dagpeninga vegna veikinda maka eða barns sjóðfélaga. Skila þarf inn gögnum svo sem síðasta launaseðli frá því áður en veikindi hófust, vottorði vinnuveitanda um að launagreiðslur hafi fallið niður, læknisvottorði, yfirliti yfir aðrar greiðslur sem umsækjandi nýtur og teljast ígildi launa svo sem lífeyrisgreiðslur eða örorkubætur, skattkorti ef umsækjandi vill nýta það hjá sjóðnum.
Einnig er hægt að sækja um endurgreiðslu útlags kostnaðar vegna meðferðar á líkama hjá: Sjúrkr- eða iðjuþjálfa, sjúkranuddara, kíropraktor eða sambærilegs meðferðaraðila (hámark á ári 35.000 kr. hjá BHM). Hægt er að sækja um endurgreiðslu vegna meðferðar á sál hjá: Sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sambærilegum viðurkenndum meðferðaraðila (hámark á ári 50.000 kr. hjá BHM).
a) Hjá VR eru greiddir sjúkradagpeningar sem nema 80% af launum í 270 daga. Sjá nánar á heimasíðu VR (www.vr.is).
b) Hjá Eflingu eru greiddir sjúkradagpeningar (80% af meðaltekjum næstliðinna 6 mánaða) í allt að 150 virka daga og í sérstökum tilvikum. Greitt er allt að 100% tekjutap að meðtöldum dagpeningum frá Tryggingastofnun ef samfelld aðild að sjóðnum er 5 ár eða lengri. Að höfðu samráði við trúnaðarlækni sjóðsins er heimilt að greiða allt að 150 daga til viðbótar. Sjá nánar á heimasíðu Eflingar (www.efling.is).
c) Hjá Sambandi íslenskra bankamanna (SÍB) greiðir styrktarsjóður þeim sem eru í starfi en lenda tímabundið út af launaskrá ákveðna upphæð á mánuði í ákveðinn tíma. Félagsmenn fá greitt miðað við starfsaldur og starfshlutfall sl. 12 mánuði. Dagpeningar eru 80% af launum. Sjúkradagpeningar greiðast í allt að 12 mánuði vegna veikinda félagsmanna, maka þeirra eða barna. Sjá nánar á heimasíðu SIB (www.sib.is).
d) Hjá BHM (Bandalagi háskólamanna) eru greiddir dagpeningar til viðbótar sjúkradagpeningum TR eða örorkulífeyri frá TR, lífeyrissjóði eða öðrum greiðslum sem rekja má til fjarverunnar. Greiðslutímabil er allt að 270 dagar á hverjum 12 mánuðum og eru laugardagar og sunnudagar ekki taldir með. Greiðir sjóðurinn vegna 100% fjarveru eða hlutfallslega ef unnið er skert starf og tímabundið tekjutap af þeim sökum. Ekki má þiggja atvinnuleysisbætur eða aðrar launagreiðslur samhliða dagpeningum úr sjóðnum. Réttindakerfi v/sjúkradagpeninga innan BHM er tvenns konar. 1) Greiddar eru 8.000 kr. fyrir hvern virkan dag miðað við fullt starf eða hlutfallslega miðað við starfshlutfall við upphaf veikinda. 2) Greidd eru 80% af launum. Sjá nánar á heimasíðu BHM (www.bhm.is).
6.2. Lífeyrissjóðir:
a) Örorkulífeyrir lífeyrissjóða nemur u.þ.b. 40-50% af launum viðkomandi einstaklings og greiðist þar til hann fer á ellilífeyri. Skilyrði er að sjóðfélagi hafi orðið fyrir sjúkdómi sem skerðir getu hans til að gegna starfi sínu og sannanlegum tekjumissi af völdum sjúkdómsins. Miðað er við að örorkan sé a.m.k. 50% og að viðkomandi hafi greitt í 2 ár í lífeyrissjóðinn. Bæturnar falla niður þegar sjóðfélaginn verður vinnufær aftur (www.ll.is).
a) Makalífeyrir greiðist til eftirlifandi maka. Upphæðin fer eftir áunnum réttindum sjóðfélaga, nálægt 20-25% af launum og er yfirleitt greiddur tímabundið. Makalífeyrir fellur niður ef maki gengur í hjónaband eða stofnar til sambúðar á nýjan leik.
b) Barnalífeyrir. Börn sjóðfélaga og kjörbörn eiga rétt á barnalífeyri að 18-20 ára aldri samkvæmt reglum viðkomandi lífeyrissjóðs.
Vekja má athygli á því að ef skipt er um lífeyrissjóð á miðri starfsævi getur viðkomandi glatað umtalsverðu (allt að 15%) af lífeyrisréttindum sínum. Þetta á við ef viðkomandi skiptir í lífeyrissjóð sem byggir á öðru réttindakerfi. Þ.e. ef skipt er úr venjulegum (hefðbundnum) lífeyrissjóði yfir í lífeyrissjóð sem aldurstengir greiðslurnar.






