Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Hagnýtt Efni Bjargráð 4. Skattar og opinber gjöld

4. Skattar og opinber gjöld

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Skattkorti skal skipta þegar greiðslur koma frá fleiri en einum stað. Skipta má skattkorti hjá ríkisskattstjóra Laugavegi 166, Reykjavík (www.rsk.is) eða hjá næsta skattstjóra.

4.1.      Skattaívilnanir. Hægt er að sækja um lækkun skatta og e.t.v. nokkur ár aftur í tímann þegar tekjur lækka skyndilega vegna veikinda. Umsókn um skattalækkun (eyðublað A nr. 3.05) skal fylgja með skattaframtali þegar sótt er um skattaívilnun vegna útgjalda (verulegur kostnaður umfram bætur og styrki). Í þessu er átt við dvalarkostnað á stofnunum, lyfja- og lækniskostnað, kostnað vegna ferða og ýmis konar sérútbúnað vegna fötlunar o.s.frv. sbr. reglur nr. 212/1996, um skilyrði fyrir ívilnun samkvæmt 66. og 80. grein laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignaskatt. Með umsókninni þurfa að fylgja ljósrituð gögn um útlagðan kostnað, læknisvottorð og greinargerð.

4.2.      Fasteignagjöld. Hugsanlega á fólk rétt á afslætti af fasteignagjöldum ef tekjur eru undir ákveðnu viðmiðunarmarki. Sótt er um afslátt af fasteignagjöldum hjá viðkomandi sveitarfélagi.

 

Borði
Styður gerð þessarar síðu.