Hér til hliðar er að finna ýmsar upplýsingar sem að komið geta að góðum notum fyrir einstaklinga sem hafa farið í aðgerð, eiga það fyrir höndum sem og fjölskyldu og vandamenn þeirra.
Bæklingurinn, nýútkomin upplýsingarbæklingur sem að geyma upplýsingar fyrir þá sem hafa fengið stóma eða eiga fyrir höndum stómaaðgerð.(pdf skjal 247 kb)
Stómasamtökin er stollt af heimsóknarþjónustunni sem þau halda úti fyrir einstaklinga sem að eiga aðgerð fyrir höndum. Þá getur sjúklingur fengið heimsókn frá jafningja sem hefur svipaða reynslu að baki og fengið ráð og stuðning frá honum.
Algengar spurningar og svör eru þær spurningar sem brenna á vörum fólks sem stendur frammi fyrir að lifa með stómíu eða innvortis poka. Endilega kíktu á eða sendu okkur póst með þinni spurningu ef hún kemur ekki fram á vefnum.
Mataræði fyrir stómaþega er grein sem að birtist í fréttablaði Stómasamtakanna við mikla gleði félagsmanna. Greinin er eftir Svövu næringarráðgjafa á Landspítalanum og erum við henni mjög þakklátt fyrir þessa grein.
J-pokaæfingar er hringbotnsvöðva æfingakerfi sem kallast Kiegel æfingar. Þær hjálpa til við að hafa stjórn á hægðum. Mikilvægur hluti undirbúnings fyrir J- pokaaðgerð.
Afmælisrit Stómasamtaka Íslands sem gefið var út í tilefni að 25 ára afmæli samtakanna. Þar er að finna upplýsingar sem og viðtöl við stómaþega sem muna tímanna tvenna að lifa með stóma.(pdf skjal 3Mb)



Hagnýtt Efni


