KYNLÍF OG KRABBAMEIN
- RÆÐUM MÁLIN - VIÐ ÞORUM!
Örráðstefna 19. janúar 2012 kl. 16:30-18:00
Að viðhalda eða endurheimta nánd í samböndum í krabbameinsmeðferð
Opnum umræðuna um kynlíf og krabbamein
Á örráðstefnu Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Kynlíf og krabbamein, sem haldin verður fimmtudaginn 19. janúar í tengslum við verkefnið Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss, fjallar hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf. Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein segja frá sinni reynslu. Fundarstjóri er Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.
,,Þrátt fyrir að almenn umræða um kynlíf sé nokkuð opinská nú á tímum þá virðist hún ekki vera auðveld þegar kemur að samskiptum læknis og sjúklings. Þetta er reynsla okkar hér í Hollandi þó við séum talin fremur frjálslynd. Það er undantekning ef ekki er hægt að gera eitthvað fyrir sjúklinginn, þrátt fyrir mjög alvarleg veikindi,“ segir dr. Woet Gianotten, sérfræðingur í kynfræði.
UM RÁÐSTEFNUNA:
Örráðstefnan verður haldin í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 19. janúar næstkomandi milli 16:30 og 18:00. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Dr. Woet Gianotten hefur starfað um árabil við lækningar og ráðgjöf á sviði kynfræði (e. sexology) við háskólasjúkrahúsin í Utrecht og Rotterdam í Hollandi. Sérhæfing hans felst í ráðgjöf og meðferð um kynheilsu þar sem sjúkdómar, líkamleg fötlun og læknisfræðileg inngrip eru meginástæða kynlífsvanda skjólstæðingsins.
Dr. Woet Gianotten segir að í starfi sínu við endurhæfingu á kynheilbrigði sé vandi sjúklinganna afleiðing ýmissa sjúkdóma en vandi krabbameinssjúklinga stafi af meðferðinni. Þetta er mikilvægur munur.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir fjölbreytta ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Markmið starfsins er að aðstoða fólk við að takast á við breyttar aðstæður eftir greiningu krabbameins.





