Hugleiðingar formanns
Ágætu félagsmenn. Laugardaginn þriðja október héldum við hátíðlegan Alþjóðlega stómadaginn.. Er það í annað sinn sem Stómasamtök Íslands taka þátt í hátíðahöldum af þessu tilefni. Birt var heilsíðu auglýsing í Morgunblaðinu á föstudegi til að þetta færi nú örugglega ekki framhjá neinum auk þess sem fundarins og dagskrár var getið í fréttabréfi samtakanna.og heimasíðu.. Vandað var til dagskrár og léttar veitingar voru á boðstólum í opnu húsi að Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélags Íslands.
Tilefni þessara skrifa er að nánast enginn af félagsmönnum mætti til að kynna sér það sem þarna fór fram og þiggja í leiðinni veitingar. Fjórir aðilar utan samtakanna mættu til að kynna sér starf okkar og gengu síðan í samtökin og eru þeir hjartanlega velkomnir í okkar hóp.
Tilgangurinn með þessum skrifum er hins vegar sá að biðja um viðbrögð frá félagsmönnum; er enginn áhugi innan samtakanna á starfi sem þessu og þeim fræðslufundum sem framundan eru ? Undirritaður vissi hreinlega ekki hvort hann ætti að hlæja eða gráta að lokinni dagskrá laugardaginn 3. október síðastliðinn. Ef enginn er áhuginn meðal félagsmanna er vandséð að stjórn samtakanna sjái þörf á miklum fumdahöldum og kynningum. Væri þá líka gaman að fá ábendingar frá félagsmönnum um þá stefnu sem þeir vilja sjá samtökin taka.
Jón Þorkelsson, formaður Stómasamtaka Íslands.





