Að gefnu tilefni vegna influensu A (H1N1 veirunnar), oft í daglegutali nefnd Svínaflensa, höfðum við samband við Landlæknisembættið og spurðum um bólusetningar vegna H1N1veirunar fyrir þá sem eru með stóma. Ástæða þess er að í sumum tilfellum veirunar koma fram einkenni í meltingafærum s.s. niðurgangur og uppköst. Landlæknisembættið þótti EKKI ástæða til að bólusetja fullfríska stómaþega, því einkenni í meltingarfærum eru ekki greind hjá öllum sem fengið hafa flensuna og yfirleitt er um væg einkenni að ræða. Hins vegar ef fólk telur að það þurfi á bólusetningu að halda eða vill nánari upplýsingar um hvort bólusetning henti sér þá á að snúa sér til heimilslæknis. Ef þörf er á læknisþjónustu á dagvinnutíma skal hringja í heilsugæslustöðina á þínu svæði og utan dagvinnutíma á Læknavaktina. Stómasamtök Ísland vilja svo benda á að ef einstaklingur með stóma fær niðurgang að leita þá til bráðamóttöku Landsspítalans til að fá vökva í æð. Þar sem stómaþegi ofþornar á skömmum tíma. Einnig bendum við á www.influensa.is þar sem hægt er að fylgjast með fréttum af influensu A.






