Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Fréttir Annað
Welcome to the Frontpage

Örráðstefna um kynlíf og krabbamein

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

KYNLÍF OG KRABBAMEIN

- RÆÐUM MÁLIN - VIÐ ÞORUM!

Örráðstefna 19. janúar 2012 kl. 16:30-18:00
Að viðhalda eða endurheimta nánd í samböndum  í krabbameinsmeðferð
Opnum umræðuna um kynlíf og krabbamein
Á örráðstefnu Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Kynlíf og krabbamein, sem haldin verður fimmtudaginn 19. janúar í tengslum við verkefnið  Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss, fjallar hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf.  Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein segja frá sinni reynslu. Fundarstjóri er Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.
,,Þrátt fyrir að almenn umræða um kynlíf sé nokkuð opinská nú á tímum þá virðist hún ekki vera auðveld þegar kemur að samskiptum læknis og sjúklings. Þetta er reynsla okkar hér í Hollandi þó við séum talin fremur frjálslynd. Það er undantekning ef ekki er hægt að gera eitthvað fyrir sjúklinginn, þrátt fyrir mjög alvarleg veikindi,“ segir dr. Woet Gianotten, sérfræðingur í kynfræði.

 

UM RÁÐSTEFNUNA:

Örráðstefnan verður haldin í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 19. janúar næstkomandi milli 16:30 og 18:00. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Dr. Woet Gianotten hefur starfað um árabil við lækningar og ráðgjöf á sviði kynfræði (e. sexology) við háskólasjúkrahúsin í Utrecht og Rotterdam í Hollandi. Sérhæfing hans felst í ráðgjöf og meðferð um kynheilsu þar sem sjúkdómar, líkamleg fötlun og læknisfræðileg inngrip eru meginástæða kynlífsvanda skjólstæðingsins.
Dr. Woet Gianotten segir að í starfi sínu við endurhæfingu á kynheilbrigði sé vandi sjúklinganna afleiðing ýmissa sjúkdóma en vandi krabbameinssjúklinga stafi af meðferðinni. Þetta er mikilvægur munur.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir fjölbreytta ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Markmið starfsins er að aðstoða fólk við að takast á við breyttar aðstæður eftir greiningu krabbameins.

 

Mottumars

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Karlar og krabbamein.

Mottumars.

Núna 1. mars hófst í annað sinn átaksverkefni KÍ og aðildarfélaga þes, Mottumars.  Af því tilefni vantar karlmenn sem hafa fengið krabbamein til að koma fram í fjölmiðlum og vekja athygli á málstaðnum.  Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni eru beðnir að hafa samband við Jón formann í síma 696-4395 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . 

Félagsmenn eru síðan hvattir til að taka þátt í mottumars og styðja framtakið.  Jón Þorkelsson, formaður Stómasamtakanna, hefur skráð sig til leiks og er keppndi nr. 1288.  Eru félagsmenn hvattir til að styðja hann eða aðra góða þátttakendur.  Áheit skiptast milli KÍ og aðildarfélaganna.

Stjórnin.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. mars 2011 09:22
 

Ágúst fer á tindinn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Við minnum á að endilega kíkja á síðuna hans Ágústar um ferð hans.

Þið getið fundið hana hér eða farið á http://goingup2010.wordpress.com

 

Kveðja,

Stjórnin

 

Jólahlaðborð

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jólahlaðborð verður á fjórðu hæðinn í Skógarhlíð núna 2 desember.  Húsið opnar 18:30 og eru allir hvattir til að mæta og gæða sér á góðum mat og hitta gott fólk.

 

Kveðja

Stjórnin

 

Fundur hjá Krafti

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Næsta þriðjudag þann fjórða maí verður fundur hjá Krafti sem ber yfirskriftina "Takmarkanir eru í huganum en ekki líkamanum".  Þar munu tveir strákar deila sinni reynslu af krabbameini.  Annar þeirra, Ágúst, er með stóma og stefnir á þrekvirki í sumar í formi fjallaklifurs.  Við bendum því á að allir stómaþegar ættu að kíkja á þennan fund og heyra sögu þessara drengja.  Þetta verður í Skógarhlíðinni og fundur byrjar kl 20:00.

Hér er svo auglýsingin sem er á vef Krabbameinsfélagsins. 

"Takmarkanir eru í huganum en ekki líkamanum. Upplifum vellíðan saman í sumar í formi hreyfingar og ánægjulegrar samveru. Steinar B. Aðalbjörnsson og Ágúst Kristján Steinarsson segja okkur reynslu sína af því að takast á við krabbamein go halda áfram að takast á við ögrandi verkefni sem krefjast jafnframt líkamlegs úthalds. Nýtum okkur eldmóð þeirra til að takast á við ánægjulegar samverustundir Krafts í sumar í formi hreyfingar"

Með kveðju,
Stjórnin

 


Síða 1 af 3

Borði
Styður gerð þessarar síðu.