Félagsfundur í nóvember
Þriðjudagur, 01. nóvember 2011 12:53
Þorleifur Gíslason
Minnum á félagsfund fimmtudagskvöldið 3. nóvember næstkomandi í Skógarhlíð 8 að vanda. Sameiginlegur fundur með CCU samtökunum. Sálfræðingur mætir á staðinn og heldur fyrirlestur. Húisð opnar 19:30. Kaffiveitingar og spjall að fyrirlestri loknum.
Einnig minnum við á könnum sem læknar á Landspítalanum sendu út núna nýlega. Við hvetjum þá félagsmenn sem fengu þessa könnun senda í pósti að svara henni hið fyrsta. Ef eitthvað er óskýrt í könnuninni þá eru skilaboð frá viðkomandi læknum að hafa samband og fá útskýringar.