Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Fréttir Fundir Evrópskur formannafundur í Frankfurt

Evrópskur formannafundur í Frankfurt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Helgina 9. til 11. apríl var haldinn formannafundur á vegum Evrópsku stómasamtakanna EOA.  Fundurinn var haldinn í Frankfurt og tók undirritaður þátt í honum.  Ríflega þriggja tíma flug mitt þótti ekki mikið hjá mörgum öðrum þátttakendum sem sumir lögðu á sig tíu tíma rútuferðir fram og til baka til að taka þátt í fundinum.  Fundurinn var ætlaður til þess að samræma sjónarmið okkar í Evrópusamtökunum fyrir alheimsráðstefnu í Bangkok síðar á árinu.  Um fimmtán manns tóku þátt í fundinum, einn frá hverju Norðurlandanna og síðan fulltrúar til dæmis frá svo ólikum löndum sem Hollandi og Rúmeníu.  Til gamans má geta þess að undirritaður sat við hlið hollenska fulltrúans meðan fundarstörf  fóru fram og  fór bara vel á með okkur.  Aðalefni fundarins var að ræða nýja stjórnarskra fyrir alþjóðasamtök stómaþega, IOA.  Vinnuhópur  hafði um þremur mánuðum áður skilað af sér drögum að nýrri stjórnarskrá.  Urðu töluverðar umræður um málið meðal viðstaddra.  Undirritaður lagði ekki margt til þeirra mála en rak síðan af sér slyðruorðið þegar umræðurnar snérust að uppgjöri á peningamálum milli Evrópu og Alþjóðasamtakanna.  Var tillaga mín um lausn þeirra mála samþykkt þó svo að ritari fundarins ætti erfitt með að skilja hana sökum smávægilegra tungumálaerfiðleika. 

Þegar umræðum um málefni IOA lauk snéru menn sér að næstu ráðstefnum, alheimsráðstefnu í Bangkok í nóvember 2010 sem fyrr er nefnd og Evrópuráðstefnu í Úkraínu í maí 2011.   Einnig var ýjað lauslega að því hvort við á Íslandi gætum haldið Evrópuráðstefnu árið 2014.  Tók undirritaður vel í það. 

Af öðrum málum var síðan að frétta að illa gengur að viðhalda tengslum við stómasamtök í löndum eins og Hvíta Rússlandi og Alsír og að ekki virðast vera til stómasamtök í Grikklandi svo að dæmi sé tekið.  Starf á vegum yngri stómaþega í Evrópu gengur treglega um þessar mundir þar sem að sú sem átti að halda utan um það starf, Daiga Skagale frá Lettlandi, á við veikindi að stríða og virðist þess utan horfin af yfirborði jarðar.  Við sem kynntumst henni í Brno í Tékklandi í september 2008 vonum það besta fyrir hennar hönd.

Hafnarfirði, 13. apríl 2010.

Jón Þorkelsson

foramannafundur1

formannafundur 2

formannafundur 3

 

Borði
Styður gerð þessarar síðu.