Stómasamtökin

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heim Fréttir Fundir
Welcome to the Frontpage

Félagsfundur í febrúar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar 2012 kl. 20:00 í Skógarhlíð 8.  Húsið opnar kl. 19:30.
Spjall og léttar veitingar.
 

Jólahlaðborð 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jólahlaðborð 2011

 

Stómasamtök Íslands efna til jólahlaðborðs

fimmtudaginn 1. desember

í Víkinni – Sjóminjasafni Reykjavíkur

að Grandagarði 8, 2. hæð.

 

Dagskráin hefst með ávarpi formanns,

Jóns Þorkelssonar, en að því búnu

verður matur á borð borinn.

 

Að máltíð lokinni verður lesið uppúr

nýútkomnu smásagnasafni Ólafs Gunnarsson,

Meistaraverkið og fleiri sögur.

Hlutavelta og ef til vill fleira til skemmtunar.

 

Fjölskyldur og vinir félagsmanna eru velkomnir.

Húsið opið frá kl. 18.30.

 

Aðgangseyrir kr. 1000.

 

Athugið að jólahlaðborðið verður að þessu sinni

ekki í húsnæði Krabbameinsfélagsins heldur í

Sjóminjasafni Reykjavíkur að Grandagarði 8, 2. hæð.

 

Ungliðahittingur og heimsókn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Ungliðahittingur verður  niðri í Skógarhlíð á fyrstu hæð kl. átta á fimmtudagskvöldið, 5. maí.   3 ameríkanar ætla að koma og segja frá sér, Thomas Exler, Misty Blue Foster og Bob Heitker. Þetta verður mjög áhugavert og skemmtilegt, gaman að heyra hvernig aðrir hafa það í öðrum löndum. Misty Blue Foster ætlar að segja frá sinni sögu og Bob Heitker ætlar að segja frá ungliðaráðstefnu sem þau voru að koma af og Thomas Exler frá samtökum sínum í ameríku.

Endilega fjölmennum og höfum það
 

Félagsfundur í nóvember

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Minnum á félagsfund fimmtudagskvöldið 3. nóvember næstkomandi í Skógarhlíð 8 að vanda. Sameiginlegur fundur með CCU samtökunum. Sálfræðingur mætir á staðinn og heldur fyrirlestur. Húisð opnar 19:30. Kaffiveitingar og spjall að fyrirlestri loknum.

Einnig minnum við á könnum sem læknar á Landspítalanum sendu út núna nýlega. Við hvetjum þá félagsmenn sem fengu þessa könnun senda í pósti að svara henni hið fyrsta. Ef eitthvað er óskýrt í könnuninni þá eru skilaboð frá viðkomandi læknum að hafa samband og fá útskýringar.

 

Félagsfundur í apríl

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Félagsfundur fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.  Húsið opnar 19:30.  Aðalefni fundarins verður „Við getum svo margt“.  Opnunar erindi flutt af  líkamsræktarþjálfara sem einnig er stómaþegi.  Aðrir félagsmenn hvattir til að taka til máls og deila reynslu sinni.  Einnig verður kynning á þjálfunarfatnaði sem hentar okkur.

Fjölmennum og tökum með okkur gesti.

 

Stjórnin.

 


Síða 1 af 3

Borði
Styður gerð þessarar síðu.